• Fylgið okkur

Áratugur af sirkus

Reykjavík 28.Júní-7.Júlí

Ísafjörður 26.-28.Júlí

Sýningar

Áratugur af sirkus

Íslenskt sirkusfólk tjaldar sirkustjaldinu Jöklu og býður upp á frábært nýtt efni í bland við gamla smelli sem ekki hafa sést lengi. Þessi litríka fjölskyldusýning er uppfull af loftfimleikafólki, trúðum, juggli, akróbötum og alls kyns ótrúlegum uppákomum og svíkur engan – stóran né smáan – um háklassa og töfrandi sirkusupplifun.

Skinnsemi 2019

Skinnsemi 2019 er háklassa sirkussýning fyrir fullorðna, með slettu af burlesque og góðu dassi af vitleysisgangi. Sýningin í ár er meðal annars uppfull af ótrúlegum loftfimleikum, glimmerdrengjum, keilukúlum og háalvarlegu tónprumpi. Frá 2011 hefur Skinnsemi verið vettvangur fyrir reglulega útrás íslensks sirkuslistafólks fyrir fullorðinshúmor og kynþokka sem ekki hentar fjölskylduskemmtunum, og getur hún því kallast einn af brautryðjendum ört vaxandi kabarettsenu á Íslandi.