Skinnsemi 2019 er háklassa sirkussýning fyrir fullorðna, með slettu af burlesque og góðu dassi af vitleysisgangi. Sýningin í ár er meðal annars uppfull af ótrúlegum loftfimleikum, glimmerdrengjum, keilukúlum og háalvarlegu tónprumpi. Frá 2011 hefur Skinnsemi verið vettvangur fyrir reglulega útrás íslensks sirkuslistafólks fyrir fullorðinshúmor og kynþokka sem ekki hentar fjölskylduskemmtunum, og getur hún því kallast einn af brautryðjendum ört vaxandi kabarettsenu á Íslandi.